Nýtt ár og vonandi nýtt og betra líf
Eftir að ég átti Björgvin fékk ég skjaldkirtilslömun og þyngdist um 30 kg. á nokkrum mánuðum.
Þessi kíló fóru ekkert þó ég væri komin á lyf og eftir meðgönguna með Þorgeir var ég orðin 20 kg. þyngri en það :/
Svo nú er kominn tími til að gera eitthvað í málunum!
Ég er komin með markmið fyrir árið 2010 og það er að missa um 30 kíló á þessu ári.
Ég verð ennþá í talsverðri yfirþyngd, en amk verð ég ekki hættulega mikið of þung.
Til að geta lifað betra lífi með strákunum mínum og til að hafa orku og úthald í að vinna 100% vinnu og sjá um heimilið, verð ég að missa amk 50 kíló á næstu árum, að missa jafnvel 60 kg. væri ekki verra.
Ég hef aldrei skrifað þessar tölur niður áður, hvað þá opinberlega, en nú ætla ég að nota netið sem aðhald :)
Ég ætla samt ekki að segja ykkur hvað ég er þung... ekki strax amk en BMI er 45,7 sem er flokkað undir lífshættulega hátt.
Og hvernig ætla ég að gera þetta spyrðu kannski.
Ég ætla að fara í ræktina 3x í viku og reyna að komast í sund hina dagana.
Þegar ég verð komin með vinnu ætla ég að taka frá hluta af laununum mínum og ráða mér svo einkaþjálfara í sumar og nota orkuna sem sólin gefur mér í að vera extra dugleg :)
En fyrstu 3-4 vikurnar ætla ég að ganga mikið og reyna að lyfta smá.




